Sterkari og heilbrigðari
á 90 dögum ÁN þess að fara í megrun
Þú hafir ekki nægan viljastyrk
Þú sért sykurfíkill
Það sé yfirþyrmandi hversu margar leiðir eru boði og erfitt að finna "þá réttu"
Þú sért alltaf að "byrja upp á nýtt"
Þyngdin þín sé yo-yo upp og niður
EN..
Góð spurning...yfirleitt snúum við spurningunni við.
"Ert þú rétti aðilinn sem við ættum að taka inn í Masterclass prógrammið ?"
Vegna þess að Masterclass prógrammið er alls ekki fyrir hvern sem er.
Upplifir uppgjöf og ert tilbúin að kynnast nýrri nálgun
Ert tilbúin að láta vigtina til hliðar í 90 daga
Þráir að styrkjast og efla þolið
Ert komin með nóg af "yo-yo dieting" og vilt læra að eiga í heilbrigðu sambandi
við mat og vigtina
Athugaðu þinn rétt hjá þínu stéttarfélagi
Hæ, ég heiti Ásdís Inga og er 28 ára einkaþjálfari og hóptímakennari, unnusta og móðir tveggja drengja. Ég ætla að segja þér sanna sögu úr lífi mínu fyrir 4-5 árum síðan.
-
Botninum var náð
Ég kláraði heilan dúnk af kökudeigi, þessu í brúnu dúnkunum frá 17 sortum - minn "go-to" binge matur á þeim tíma.
Mér leið svo ILLA, mér fannst ég skítug og mér leið hræðilega í líkamanum.
Þá kikkaði samviskubitið inn.
Hversu mikið af kaloríum var ég að innbyrgða?
Gæti ég kannski fastað í sólahring og núllað þetta út?
-
Það var þetta kvöld sem ég lá í sófanum og fékk yfirþyrmandi öldu af vonleysi yfir mig og hugsaði með mér;
"hvað ertu að gera Ásdís? Er þetta það sem þú vilt?"
-
Hvað hafði komið mér á þennan stað þar sem ég borðaði heilan dúnk af kökudeigi, var að drepast í maganum og var enn og aftur að plana hvernig ég gæti "náð þessu af mér"?
Svo daginn eftir ákvað ég að taka mig saman í andlitinu og fór á djús kúr
Fyrsta daginn gekk mjög vel, annan daginn gekk mjög vel.
Ég léttist aðeins og var ótrúlega jákvæð með framhaldið!
Eeeen... svo tók ég annað binge
Og vítahringurinn hélt áfram
Og í þessum vítahring var ég föst í mörg ár.
Ef þú ert að tengja, haltu áfram að lesa
Skömmin sem kemur upp þegar þú borðar það sem er "óhollt" og reynir svo að borða "hollt" til að bæta upp fyrir það
Endalaust að telja kaloríur
Setja innkaloríur í símann
Hversu margar kaloríurþurfti ég til að léttast?
Ég var stöðugt að hugsa hvernig ég gæti náð stjórn á þessum aðstæðum.
Ég laumaði mat heim og binge-aði í laumi þegar enginn var heima. Beið eftir að allir færu út svo ég gæti verið ein án þess að vera kvíðin yfir því að einhver myndi standa mig að verki.
Ég varð félagslega einangruð því mér leið eins og ég gæti ekki farið og hitt annað fólk, endalaust af minningum og tækifærum sem runnu úr greipum mér vegna þess að mér leið svo illa með sjálfan mig.
Ég prófaði ALLT
Djúskúra
Ketó
Carb nite
Telja macros
Fara til einkaþjálfara
Sjálfshjálparbækur
Dáleiðslu
Þerapíu
Svo loksins eftir öll þessi ár af sama vítahringnum er ég LOKSINS á þeim stað að mér líkar það sem ég sé í speglinum, ég er frjáls og get borðað allt sem mig langar í (íhófi).
Ég á kökudeig til inn í ísskáp núna og ég er sallaróleg yfir því.
Þegar ég skráði mig á námskeiðið var ég mest hrædd um að þetta yrði eins og önnur námskeið sem ég hef farið á. Byrjar með háleitum markmiðum sem endast ekki.
-
En þetta námskeið kom mér svo sannarlega á óvart! Svo mikil virðing. Virðing í öllu sem að kemur frá Ásdísi og hún hjálpar okkur að læra að bera virðingu fyrir okkar eigin líkama. Ég held að það sé lykillinn að finna réttan hvata fyrir öllu sem við gerum í lífinu og þetta námskeið hjálpar klárlega með það.
-
Að vinna gegn eigin fordómum gagnvart sjálfum sér er svo mikilvægt og að læra að slaka á svipunni. Að læra að elska líkamann fyrir það sem hann er hverju sinni því að þá erum við líklegri til að hugsa vel um hann og næra og hreyfa eftir þörfum. Þetta er ekki önnur skyndilausnin heldur er þetta lífstílsbreyting!
-
Takk fyrir mig elsku Ásdís, þú veist ekki hvað þetta námskeið hefur gert mikið fyrir mig!
Bjarklind Björk
Smelltu þá og skráðu þig núna!
Það sem matarfrelsi og jákvæð líkamsímynd hafa gefið mér er svo dýrmætt.
Ég get notið lífsins án þess að þráhyggju hugsanir um mat eða kaloríur taki allt plássið í heilanum. Ég er sátt við mig, í mínum líkama. Ég hef fundið hreyfingu sem mér finnst skemmtileg og nýt þess að stunda hana.
Hreyfingin mín hefur ekkert með það að gera hvernig ég lít út heldur er markmiðið að bæta mig og heilsuna. Ég borða eftir mínu eigin innsæi og treysti líkamanum mínum en ekki klukku, matarplani eða appi.
Að vera frjáls úr viðjum megrunarkúlturs, endalausra átaka, sjálfsniðurrifs og neikvæðra hugsana er ómetanlegt. Ég óska þess að allir aðrir upplifi þessa frelsistilfinningu.
Þorbjörg - Kraftlyftingakona
Skuldbinding í þrjá mánuði
Þú greiðir fyrsta mánuð við skráningu með millifærslu, netgíró, kreditkorti eða debetkorti og færð svo næstu tvo greiðsluseðla á heimabankann.
Við skorum á gamlar hugsanir. Eftir því sem tímanum líður förum við dýpra.
Umbreytum algjörlega viðhorfi til hreyfingar sem skilar sér í því að þú ert mun líklegri til þess að halda út hreyfi-rútínu.
Í lokin setjum við tóninn fyrir komandi tíma.
Þú friðar samviskuna með því að segja
sjálfri þér að þú "byrjir aftur á mánudaginn".
Það endist svo mislengi og þú finnur þig fljótlega aftur í sömu sporum.
Vigtin er þín mælieining á "árangur".
Ef vigtin er ekki að fara niður eins og þú hafðir séð fyrir þér þá dregur það úr þér og þú hugsar "æj, ég gefst upp".
Þegar þú flosnar upp úr hreyfingunni eða borðar mat sem var á "bannlista" sem leiðir til ofáts.
Þá ferðu út í búð og klifjar þig af nammi. Því svo er það bannað daginn eftir, eða næsta mánudag.
20-30 mínútna æfingar á dag, þú ræður hversu oft í viku.
Heima eða í líkamsrækt, allt í gegnum app sem sýnir þér á mjög einfaldan og skilvirkan hátt hvernig á að fara að.
C.a hálftími-klukkutími á viku í það að hlusta á hlaðvarps fræðslu upptökur og vinna verkefnin.
Ekkert mál að hlusta á meðan að þú sinnir öðru eða ert í bíltúr.
Grúppa þar sem öll samskiptin okkar fara fram og á hverju þriðjudagskvöldi er "check in" á zoom þar sem við förum yfir liðna viku (ekki skylda að vera í mynd eða að tjá sig)
Þú getur alltaf sent mér ef eitthvað er, ég er 100% til staðar.